Færsluflokkur: Bloggar

Er þetta satt?

Ég fór í fyrra til London og labbaði í gegnum Hyde Park til að fara sjá Buckingham höll og ekki var ég var við neina fjárkúgara konungsfjölskyldunnar. Það voru bara túristar þarna þannig að það er bara spurning um hvort að mennirnir hafi verið rangt dæmdir og séu bara alsaklausir.

Það er fnykur af The Sun frétt hérna 


mbl.is 5 ára fangelsi fyrir fjárkúgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

3.sætið mikilvægast

Já frábært þriðja sætið.  Þeir hljóta að vera í skýjunum Valsararnir, ég meina þetta er sætið sem öll lið eru að keppast um í efstu deild hérna á íslandi. Allt öðruvísi staðall hér á landi sýnist mér.  Synd að Haukarnir náðu eingöngu fyrsta sætinu, djöfullinn hafi það' maður, ég sem vonaðist að þeir myndu klófesta þetta sæti í lokasprettinum.

Til hamingju Valsarar þið eigið þriðja sætið fyllilega skilið 


mbl.is Valur náði þriðja sætinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Euroshopper virkar í kreppunni

Ég er byrjaður að versla eingöngu euroshopper vörur. Ég borða bara euroshopper kjúklingabringur með euroshopper tómötum og skeini mig eingöngu með euroshopper klósettpappír ( nema þegar ég stel klósettpappír á almennings klósettum.)

Enda veð ég í seðlum þessa dagana.

p.s.

Hafið þið prófað nýja Euroshopper kókið, minni aukaefni alvöru kólabragð 


mbl.is Segir matvælakreppuna mannréttindakreppu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar eru mannasiðirnir?

Fólk traðkar hérna inn á mitt heimili án þess að það sé yrt á mann.

Afhverju er ég að opna heimili mitt ef ég fæ ekkert tilbaka? 


Hann Geir

Hann Geir fer á fætur,
Við fyrsta Davíðsgal
Að sitja í einkaþotu
Lengst til Afganistan.

Hann lætur hugann líða
Svo langt aftur í tímann
Því Davíð vill hann verða
í voða stórri einkaþotu

Og snati hans er Ingibjörg
Og Matti ráðgjafinn,
Og Alþingi er höllin.
En hvar eru lausnirnar???

Chelsea vísa

Vertu til er Man.Utd kallar á þig,

vertu til að tapa í fótbolta,

Scholesinn skorar og Ronaldo tekur skærin,

vertu til að gráta eftir tap. 


mbl.is Chelsea í úrslit í fyrsta sinn eftir 3:2 sigur á Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svona á að gera þetta

Go girls go girls!!!!!!!!!
mbl.is Vaktakerfið dregið til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hér er Jón um Jón

Vorvindar glaðir,

FL-ingar og hraðir,

geysast um markaðinn rétt eins og börn,

Jónarnir skoppa,

hjala og hopppa,

Hvíld er þeim nóg í sæ eða tjörn,

grúppan mín stóra hlustaði á,

hóa nú Jónarnir fund einum á,

FL-inn kveður,

kætir og gleður,

frjálst er að koma í FL Group.


mbl.is FL Group tekið af markaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ísskápur sprakkí tætlur

Heimilisfólkið að Kvisthaga 15 í Reykjavík vaknaði klukkan hálf fimm í nótt við ógurlega sprengingu. Ísskápurinn virðist hafa sprungið. „Hann hreinlega tættist í sundur," sagði Ragar Eyþórsson eigandi ísskápsins. Ragnar sagði að óttaslegna nágranna hefði drifið að.

„Hurðin kastaðist af ísskápnum og hentist í rúðuna brýtur hana í mola. Höggbylgjan af sprengingunni sprengdi líka vegginn þar sem innréttingarnar eru hreinlega að losna af og veggurinn er líka sprunginn inni á baðherbergi," sagði Ragnar í viðtali við fréttavef Morgunblaðsins í morgun.

Ísskápurinn sem er 6 ára af gerðinni Bloomberg tútnaði allur út við sprenginguna. Ragnar sagði að það hefðu verið matarleifar og sósuslettur út um allt eldhús. „Ísskápurinn er allur kúptur út eftir sprenginguna," sagði Ragnar.

„Hurðin þeyttist um tvo metra í gluggann sem er fjórir fermetrar og glerbrotum rigndi yfir götuna fyrir neðan," sagði Ragnar sem sagðist vera feginn að það viðraði vel því þau væru að bíða eftir nýrri rúðu í gatið. 

Lögreglan kom og tók skýrslu og maður frá tryggingafélagi Ragnars leit á rústirnar og sagðist ekki hafa séð annað eins á 20 ára ferli.

Ragnar sagði að enginn eldur hafi komið upp og að í skápnum hafi einungis verið hefðbundinn heimilismatur. 

Málið er óupplýst en Ragnar segist hafa fundið gaslykt eftir sprenginguna.
mbl.is Ísskápurinn sprakk í tætlur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afhverju???

Afhverju???
mbl.is Eldur í kerskála
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband