24.4.2008 | 23:01
Fjáröflun fyrir ríkið
Ef að nú hjá Wall Street ég einn dal fengi,
fjarskalega hrifin og glaður ég yrði þá,
Ég þakka skyldi Wall Street og veðja á þá lengi
og kaupa síðan allt sem mig langar til að fá.
Fyrst kaupi ég mér vörubíl af eyðslusömustu gerð
og tengivagn af fallegustu gerð.
Og af því hvað hún Ingibjörg er orðin þreytt af Íslandi
ætla ég að gefa henni aðra leiðina til austurlanda.
Hjólhest og járnbraut ég ætla að gefa Geira,
gríðastóra herdeild ég kaupi fyrir Björn,
svo kaupi ég mér bjór og sígó
svo gef ég afganginn í ríkissjóð.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.